Sýningargjöld er hægt að greiða á skrifstofu BV á Hvanneyri eða inn á reikning nr. 1103-26-100, kt.: 461288-1119. Mikilvægt er að faxa strax greiðslukvittun á faxnúmerið 437-2015. Á kvittuninni þarf að koma fram nafn og númer hrossa sem greitt er fyrir. Ef greitt er í gegnum netbanka þarf að senda greiðslukvittun á netfangið bv@bondi.is. Endurgreiðsla sýningargjalda kemur því aðeins til greina að forföll séu tilkynnt áður en dómar hefjast.
Blóð þarf að hafa verið tekið úr öllum stóðhestum sem til dóms koma og auk þess sem allir stóðhestar 5 vetra og eldri þurfa að vera röntgenmyndaðir með tilliti til spatts áður en þeir koma til dóms. Framvísa þarf vottorðum frá dýralækni um hvorutveggja. Öll hross þurfa að sjálfsögðu að vera grunnskráð og örmerkt svo sem verið hefur á undanförnum árum.
Frekari upplýsingar um reglur varðandi kynbótasýningar má finna hér á vefsíðu Búnaðarsamtaka Vesturlands.
|