Grétar Ólafur Hjartarson kom KR yfir á ný á 51. mínútu með laglegu skoti beint úr aukaspyrnu af 18 metra færi, 2:1. Grétar var síðan rekinn af velli á 73. mínútu eftir samstuð við Bjarka Frey Guðmundsson markvörð ÍA en af sjónvarpsmyndum máttu glögglega sjá að það var rangur úrskurður hjá Garðari Erni Hinrikssyni dómara.
Bjarki Freyr, markvörður ÍA, var einnig rekinn af velli, á 87. mínútu, fyrir að slá Rógva Jacobsen, Skagamenn höfðu þá notað allar innáskiptingar sínar þannig að Hjörtur J. Hjartarson, sóknarmaður þeirra, fór í markið. Hann var þar í einar 10 mínútur því hvorki meira né minna en sjö mínútum var bætt við leiktímann vegna tafa.
Sjá nánari lýsingu af leiknum í Skessuhorni í næstu viku.
|