Heyfyrningar og t.d. skemmdar hreyrúllur er eitthvað sem flestir bændur sitja uppi með. Að nýta hey til að græða upp mela og óræktuð svæði er mjög gott ráð og ef rétt er að því staðið er fátt sem gerir meira gagn við uppgræðslu. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd hafa rúllur verið nýttar til landgræðslu og má sjá verulegan árangur nú þegar. Hinsvegar hefur viðkomandi gleymt að fjarlægja rúllubaggaplastið sem verður að teljast galli og beinlínis bagalegt í umhverfislegu tilliti. Ekki eru þetta minni spjöll á náttúrunni en flöskur, sígarettustubbar og annað drasl sem skilið er eftir á víðavangi.
|