Skessuhorn minnir alla áhugasama bæjarbúa á opinn fund með frambjóðendum allra lista sem bjóða fram til sveitarstjórnar á Akranesi. Fundurinn er í kvöld í Bíóhöllinni við Vesturgötu og hefst stundvíslega klukkan 20:00. Fyrirkomulag fundarins verður með þeim hætti að fulltrúar framboðslistanna halda framsöguerindi, samtals 8 mín. hver listi. Dregið verður um röð á staðnum. Eftir framsögur verður opnað fyrir munnlegar fyrirspurnir úr sal. Fundarstjórar og tímaverðir verða Magnús Magnússon, ritstjóri og Halldór Jónsson, blaðamaður á Skessuhorni.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. |