Prentað laugardaginn 25. maí kl. 13:09 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Hvernig líst þér á nýju ríkisstjórnina?

Mjög illa

Frekar illa

Hlutlaus

Frekar vel

Mjög vel

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Fegrun Akraneskaupstaðar hafin

2. júní 2006

Þessa dagana má sjá ungmenni við fegrun bæjarins mætt til sumarstarfa. Er þetta hópur ungmenna ´89 árgangsins sem Akraneskaupstaður sér fyrir vinnu og að auki verðandi flokkstjórar vinnuskólans. Þau hefur mátt sjá undanfarna daga við slátt, arfareitingu og önnur störf. Þá hefur einnig mátt sjá dráttarvél bæjarins með vagn í eftirdragi, fullan af garðaúrgangi og öðru sorpi sem hefur verið hreinsað úr bænum.

 

17 ára ungmenni hafa mörg hver átt erfitt uppdráttar á vinnumarkaði á Akranesi undanfarin ár þar sem fjöldi fyrirtækja ræður ekki fólk til starfa yngra en 18 ára, en þrjú ár eru síðan tekið var til þess úrræðis að bjóða þeim vinnu hjá bænum sem uppi stóðu atvinnulaus í byrjun sumars. Í ár eru það um 30 einstaklingar sem komnir eru til vinnu hjá bænum úr þessum árgangi, en hin fyrri ár hafa mörg þeirra verið að detta inn í aðra vinnu þegar á sumarið líður, að sögn Einars Skúlasonar æskulýðsfulltrúi Akraneskaupstaðar. Einnig taldi hann það nauðsynlegt að fá alltaf einhverja 17 ára unglinga í vinnu sumar hvert, þar sem þeir geta hafið vinnu fyrr en grunnskólakrakkarnir.

 

Hátt í 200 unglingar úr 8., 9. og 10. bekk munu vera við störf hjá vinnuskólanum í sumar en hann hefst 12. júní. Misjafnt er hvað krakkarnir fá mikla vinnu og skiptist það eftir aldri eins og venja er. 16 ára unglingar fá vinnu í sjö vikur, 15 ára í fimm vikur og þau yngstu, 14 ára fá 20 vinnudaga og geta þessi 14 ára valið um tvö vinnutímabil. Þátttakan í vinnuskólanum er ágæt að sögn Einars, en hann telur þátttöku 10. bekkinga um þriðjungi minni en undanfarin sumur, þar sem talsvert er um það að unglingar á þessum aldri sæki vinnu á almennan vinnumarkað, svo sem við afgreiðslu í verslunum og verkamannastörf.

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 13:00  SV 5  6°C
Akrafjall 12:50  SSV 5  7°C
Hafnarfjall 13:00  SSV 9  6°C
Vatnaleið 13:00  SSA 6  5°C
Hraunsmúli 13:00  S 4  6°C
Fróðárheiði 12:50  A 7  4°C
Brattabr. 12:50  SSV 11  3°C
Holtav.h. 13:00  SSV 14  3°C
Laxárdalsh. 12:50  SSV 8  7°C
Svínad. 13:00  S 6  5°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent