Borgarlistinn og Sjálfstæðisflokkurinn í nýju sameinuðu sveitarfélagi norðan Skarðsheiðar hafa gert með sér samstarfssamning í sveitarstjórn og var sl. föstudag skrifað undir meirihlutasamstarf þessara flokka. Páll S Brynjarsson verður ráðinn sveitarstjóri, Björn Bjarki Þorsteinsson verður forseti sveitarstjórnar og Finnbogi Rögnvaldsson formaður byggðaráðs. Flokkarnir hafa einnig skipt með sér verkefnum svo sem um formennsku í einstökum nefndum næsta kjörtímabil.
Í tilkynningu frá meirihlutanum segir m.a.: “Mikil uppbygging er í hinu nýja sveitarfélagi og ljóst að fjöldi brýnna verkefna bíður sveitarstjórnarinnar. Forgangsverkefni verður að ganga frá ráðningu starfsfólks og samþykkja skipurit fyrir sveitarfélagið.”
|