Borgfirðingahátíð er ólík öðrum héraðs- og bæjahátíðum því hún byggir nær eingöngu á þátttöku heimamanna. Borgfirðingahátíð er hátíð Borgfirðinga. Eins og alltaf þegar við höldum veislu þá bjóðum við gestum að njóta stundarinnar með okkur, og það á líka við um Borgfirðingahátíð; gestir eru meira en velkomnir. Þetta er helgin þegar við eigum öll að bjóða til okkar gestum til að njóta borgfirskrar menningar.
Laugardaginn 10. júní verður fjölbreytt dagskrá í Borgarnesi. Við hefjum daginn á gönguferð á fjall eða fjöru, síðan verður sögustund í Landnámssetri og að því loknu skemmtidagskrá á tjaldstæðinu. Seinnipartinn getur fólk svo valið milli einsöngstónleika, diskósunds og landnámssögu fyrir fullorðna. Og þá verða allir orðnir svangir! |