Nú er liðinn rúmur áratugur frá því hátíð þessi var haldin fyrst. Ekki er ofsögum sagt að hún hafi skipað sér sérstöðu á landsvísu, enda leggja Húsfreyjurnar metnað sinn í að viðhalda gamalli matarhefð, með nýrri í bland. Í stórtjaldinu verður bögglauppboð, tónlist, fjöldasöngur, glens og gaman.
Tvær gönguferðir með leiðsögn verða farnar þennan sama dag og eru þær inn í dagskrá Bjartra nátta. Önnur er frá Illugastöðum, fram Brandafell og endað í Hamarsbúð. Gönguleiðin er nokkuð krefjandi, hún er 13 km löng með 700 m hækkun. Af Brandafelli er mjög víðsýnt í góðu skyggni. Brottför kl. 12:00 á hádegi frá Illugastöðum. Upplýsingar gefur Guðmundur í síma 894 0695. Hin gönguleiðin er ströndin frá Ánastaðastapa að Hamarsbúð. Um 5 km löng leið sem flestir geta gengið. Gott útsýni til Strandafjalla. Brottför kl. 16:00 frá vegvísi skammt sunnan Skarðs á Vatnsnesi.
Upplýsingar gefur Heimir í síma 451 2547. |