Mjög góð aðsókn er að námi við Landbúnaðarháskóla Íslands í ár og eru umsóknir hátt á annað hundrað talsins. Nemendur skólans á næsta skólaári verða um þrjú hundruð.
Þessa dagana er verið að meta hæfi umsækjenda, en talsverð aukning er á umsóknafjölda á milli ára og þarf að vísa frá á einstaka brautum. Flestar umsóknanna bárust í nám á umhverfisskipulagsbraut sem er fyrri hluti náms í landslagsarkítektúr og/eða skipulagsfræðum. Sú námsbraut er ein nýrra námsbrauta við skólann, en einnig má nefna náttúru- og umhverfisfræði og skógfræði og landgræðslu auk búvísinda sem kennd hafa verið á Hvanneyri allar götur síðan 1947. Kennsla á háskólastigi og í búfræði fer fram á Hvanneyri en garðyrkja er kennd á Reykjum í Ölfusi. |