Miðað við reynslu undanfarinna ára er mesta ferðahelgi ársins nú að ganga í garð. Gríðarleg umferð er nú á þjóðveginum í landshlutanum og gengur hún hægt. Stærstur straumur fólks er norður yfir heiðar á Landsmót hestamanna í Skagafirði en einnig er búist við mikilli umferð á Færeyska daga í Ólafsvík.
Umferðarráð, lögregla og ekki síst Skessuhorn hvetur vegfarendur til að sýna aðgæslu og tillitssemi í akstri, engan óþarfa framúrakstur og umfram allt að láta góða skapið vera með í för. Gleðilega helgi! |