Samningur Spalar við Vegagerðina hefur vakið mikla athygli og þó sérstaklega þau ákvæði samningsins að fjármunir frá Speli renni til undirbúnings tvöföldunar ganganna og gerð vegar um Kjalarnes. Þá hafa þær raddir heyrst að ákvæði um að verðgildi veggjaldsins verði óbreytt til 2018 sé staðfesting á því að vegfarendur um þetta svæði þurfi áfram að greiða fyrir afnot af hinum nýju mannvirkjum.
Gísli Gíslason segir enga skuldbindingu felast í þá veru í samkomulaginu. Hann segir að í núverandi samningum Spalar við ríkið og fjármálastofnanir sé gert ráð fyrir greiðslu veggjalds til 2018 og því sé ekki um neinar nýjar álögur að tefla. „Þvert á móti liggur fyrir að veggjaldið mun lækka þegar virðisaukaskattur lækkar 1. mars og í vor verða einnig gerðar minniháttar breytingar á gjaldskránni. Eina breytingin sem nú verður er sú að lán frá Vegagerðinni að fjárhæð 150 milljónir króna, sem Spölur átti að greiða til baka 2018, greiðist á árinu 2007. Í staðinn skuldbindur Vegagerðin sig til þess að nýta þá fjármuni, ásamt 100 milljónum til viðbótar, til þess að hefja nú þegar undirbúning að tvöföldun þjóðvegarins frá Kollafirði að Hvalfjarðargöngum og tvöföldun þeirra. Því er í raun verið að hefja nú þegar undirbúning framkvæmda sem 82% lesenda Skessuhorns töldu að ætti að vera forgangsverkefni í samgöngumálum. Því miður var það verk ekki komið á undirbúningsstig en verður það nú með þessum samningi. Stjórn Spalar hefur með afskiptum sínum af málinu viljað tryggja að samgöngur á svæðinu verði sem öruggastar fyrir vegfarendur og að áframhaldandi uppbygging samgöngumannvirkja tryggi áfram þá jákvæðu þróun sem orðið hefur eftir tilkomu Hvalfjarðarganga milli Vesturlands og höfuðborgarsvæðisins“.
Gísli segir ekki ljóst hvort þær 250 milljónir króna sem til ráðstöfunar eru til undirbúningsins dugi né heldur hvort takist að ljúka undirbúningnum árið 2008 en er bjartsýnn á að svo verði. „Takist það er ekkert því til fyrirstöðu að framkvæmdum verði lokið á árunum 2011-2012. Ég trúi því að það sé innan þeirra tímamarka sem bjartsýnustu menn hafa þorað að vona fram að þessu.“
Hann segir að þrátt fyrir að nú sé undirbúningur að framkvæmdum að hefjast sé ekkert ákveðið með hvaða hætti verði staðið að fjármögnun framkvæmda en að samkomulagið gerir ekki ráð fyrir nýrri gjaldtöku. „Til þessa verks, sem væntanlega mun kosta 6,5-7 milljarða króna, þarf að koma fjármagn frá ríkinu en Spölur getur ef um semst aðstoðað við heildarfjármögnun verksins.Vonandi mun takast að afla þeirra fjármuna þannig að framkvæmdir geti hafist þegar undirbúningi lýkur. Það er heldur ekkert því til fyrirstöðu að stjórnmálamenn taki þá ákvörðun að yfirtaka rekstur Spalar og hætta gjaldtöku í Hvalfjarðargöngum. Það er pólitísk ákvörðun sem ekki er á færi Spalar að taka.“
Gísli S. Einarsson bæjarstjóri sagði í samtali við Skessuhorn að leggja þyrfti áherslu á að framtíðarlega þjóðvegarins norður í land yrði vestan við Akrafjall. Gísli Gíslason segir að tvöföldun Hvalfjarðarganga muni liggja samsíða núverandi göngum og komi því upp á sama stað og nú. Því breytist engar forsendur um framtíðarlegu þjóðvegarins við tvöföldunina og því alls ekki komið í veg fyrir vegagerð við Grunnafjörð verði sú leið valin. |