Guðmundur Þorvaldsson hefur opnað málverkasýningu í anddyri Sjúkrahússins og heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi. Sýningin ber heitið „Héðan og þaðan.“ Á sýningunni eru 16 olíumálverk sem máluð hafa verið á undanförnum misserum. Eins og nafn sýningarinnar ber með sér hefur listamaðurinn sótt sér víða fanga en einkum þó í umhverfi Akraness og nágrennis. Guðmundur er Skagamaður og hefur stundað málaralist mörg undanfarin ár í frístundum. Hann er að mestu sjálfmenntaður en stundar nú nám í kvöldskóla Myndlistarskóla Mosfellsbæjar.
|