Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 06:55 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Höfundum borgað fyrir að dvelja og stunda ritstörf

2. febrúar 2007

Eins og fram hefur komið í Skessuhorni er nú verið að reisa Vatnasafn í Stykkishólmi en auk þess verður á sama stað, þ.e. við Bókhlöðustíg, íbúð fyrir rithöfunda þar sem þeir fá jafnframt borguð laun fyrir ritstörf sín. Þar fá innlendir og erlendir rithöfundar tækifæri til að dvelja í sex mánuði yfir 12 mánaða tímabil og geta þeir nýtt sér viðverutímann hvenær sem er á árinu. Geta höfundarnir verið á sviði náttúruvísinda, ljóðagerðar, skáldsagna eða jafnvel kvikmynda. “Við vonumst til að þeir fái innblástur frá hinni frábæru staðsetningu Vatnasafnsins og sjái jafnframt mikilvægi þess að geta unnið, skrifað og lesið í samfélaginu hér við eyjarnar. Með þessu er skapað listrænt svigrúm fyrir listamanninn sem vonandi smitar út frá sér innan bæjarfélagsins og jafnvel út í heim.

 

Á meðan dvöl listamanns stendur í bæjarfélaginu verður óskað eftir því að viðkomandi standi fyrir skipulögðum upplestrum úr eigin verkum og jafnvel annarra höfunda. Fyrirtækið Art Angel hefur umsjón með verkefninu og hafa þeir náð samkomulagi við styrktaraðila frá Bandaríkjunum næstu fimm árin, sem mun sjá um að borga laun rithöfundanna,” sagði Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri í samtali við Skessuhorn. Hún segir að þriggja manna úthlutunarnefnd velji höfund sem bjóði viðkomandi að dvelja í Stykkishólmi. Býst hún við að það verði gert opinbert fljótlega hver fyrstur hreppi hnossið.

Vatnasafnið verður formlega opnað í maí og verður rithöfundaíbúðin tekin í notkun á sama tíma.

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 06:40  ANA 4  10°C
Akrafjall 06:40  NA 4  9°C
Hafnarfjall 06:40  NNA 1  8°C
Vatnaleið 06:40  NV 3  7°C
Hraunsmúli 06:40  A 3  9°C
Fróðárheiði 06:40  VNV 4  5°C
Brattabr. 06:40  NNA 2  6°C
Holtav.h. 06:40  N 2  6°C
Laxárdalsh. 06:40  ANA 1  8°C
Svínad. 06:30  N 2  8°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent