Laugardaginn 27. janúar sl. fór fram í Akranshöllinni firmakeppni í fótbolta með þátttöku 11 liða. Mótið var haldið til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna og rann allur ágóði, þátttökugjald ásamt framlagi stuðningsaðila, til félagsins. Í gær var SKB afhent söfnunarféð, kr. 327.923, við athöfn að Jaðarsbökkum. “Félag krabbameinssjúkra barna vill koma á framfæri kæru þakklæti til þeirra sem hafa stutt við bakið á félaginu, bæði á þessu móti sem við önnur tækifæri. Það er okkur dýrmætt að finna að fólk; bæði fyrirtæki og einstaklingar vill styðja við bakið á börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra,” segir Óskar Örn Guðbrandsson, framkvæmdastjóri félagsins í samtali við Skessuhorn.
|