Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á dögunum samhljóða fjárhagsáætlun ársins 2007 og er gert ráð fyrir að niðurstaða rekstrar verði jákvæð um 20 milljónir króna. Skatttekjur eru áætlaðar um 300 milljónir króna, framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga er áætlað 45 milljónir króna og aðrar tekjur um 28 milljónir króna. Tekur sveitarfélagsins í heild eru því áætlaðar 373 milljónir króna. Stærsti einstaki gjaldaliður sveitarfélagsins er laun og launatengd gjöld eða um 166 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði er jákvæð um 13 milljónir króna og fjármunatekjur eru áætlaðar um 7 milljónir króna.
|