Að undanförnu hefur hún starfað sem verkefnisstjóri menntaverkefnis fyrir sunnanverða Vestfirði. Hún var á sínum tíma formaður Kennarasambands Vestfjarða og um árabil sat hún í skólanefnd Tálknafjarðarhrepps. Hún var formaður íþrótta- og æskulýðsnefndar Tálkafjarðar um 12 ára skeið.
Samvera fjölskyldunnar þarf að aukast
Þrátt fyrir mikil félagsstörf og störf að sveitarstjórnarmálum hefur hún ekki áður starfað innan stjórnmálaflokks. Hún segir að þrátt fyrir að hún hafi í fyrstu tekið því fjarri að taka sæti á framboðslistanum hafi hún íhugað málið. Sérstaklega þá staðreynd að á stundum virðist sem konur hopi þegar þeim standa til boða störf í stjórnmálum. Því hafi hún að lokum ákveðið að taka sætið og sé tilbúin til þess að leggja allt sitt af mörkum til þess að styrkja stöðu Vinstri-grænna. Hún segir ljóst í sínum huga að styrkja þurfi stöðu landsbyggðarinnar á komandi árum. Fjölskyldumálin séu henni eðlilega ofarlega í huga eftir áralanga reynslu af kennslu- og íþróttastarfi. Að hennar mati þarf eitt af forgangsverkefnum næstu ára að tryggja lífskjör með þeim hætti að samvera fjölskyldunnar aukist. Eins og staðan sé í dag eru samvistir stopular vegna langs vinnudags.
Til þingsetu gæti komið
Eins og fram hefur komið í skoðanakönnunum hefur fylgi Vinstri-grænna verið á hraðri uppleið undanfarna mánuði. Í Norðvesturkjördæmi hefur fylgið aukist svo mikið að samkvæmt sumum könnunum gæti annað sæti á listan Vinstri-grænna gefið þingsæti. Ingibjörg Inga segir að þrátt fyrir að hún sé nú að vinna að mjög áhugaverðum verkefnum sé hún að sjálfsögðu tilbúin til þess að taka sæti á Alþingi. Hún segir fylgisaukningu flokksins í takt við þá tilfinningu sem hún hafi og því sé henni fullljóst að til þingsetu gæti komið. Fari svo sé hún reiðubúin til þess að vinna af öllum mætti fyrir hagsmunum íbúa í Norðvesturkjördæmi svo og þjóðarinnar allrar.
Ingibjörg Inga er búsett í Tálknafirði. Eiginmaður hennar er Sigurður Árni Magnússon húsasmíðameistari frá Tálknafirði. Þau eiga þrjú börn. |