Til þessa hefur einn af stóru kostnaðarliðum fasteignaeigenda verið hitun hússins og rafmagn fyrir tæki og ljós. Því er athyglisvert að velta þeim kostnaðarlið fyrir sér í áðurnefndu húsi. Síðustu tólf mánuði hefur rafmagnsnotkun í húsinu kostað tæpar 70 þúsund krónur og hitun hússins hefur kostað rúmlega 60 þúsund krónur. Vatn er í hugum landsmanna óþrjótandi og ódýrt. Í hugum fólks hefur heldur ekki verið talið að það geti verið kostnaðarsamt að nýta fráveitur.
Hjá umræddum húseiganda í Borgarnesi er það nú svo að aðgangur að köldu vatni og fráveitu kostar nú svipaða upphæð og hiti og rafmagn hússins. Fasteignagjöldin í heild eru í þessu tilfelli tvöfalt hærri upphæð en greitt er fyrir rafmagn og kyndingu. Trúlega hefði það einhvern tímann þótt saga til næsta bæjar.
|