Á síðasta ári fjölgaði íbúum á Hvanneyri mest í þéttbýliskjörnum á Vesturlandi eða um tæp 30%. Þeir voru 234 talsins 31. desember 2005 en voru orðnir 304 um liðin áramót. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands um mannfjölda í þéttbýliskjörnum á Íslandi. Á Kleppjárnsreykjum fjölgaði íbúum úr 50 í 52 eða um 4%, á Akranesi fjölgaði íbúum úr 5.786 í 5.976 eða um 3,28%, á Hellissandi fjölgaði íbúum úr 400 í 413 eða um 3,25% og í Borgarnesi fjölgaði íbúum úr 1.846 í 1.891 eða um 2,44%. Íbúafjöldi í Rifi stóð í stað á milli ára og þar bjuggu 137 manns um síðustu áramót.
|
Í öðrum þéttbýliskjörnum á Vesturlandi fækkaði íbúum á liðnu ári. Mest var fækkunin í Reykholti eða um 18,18% eða úr 33 í 27 að tölu. Í Búðardal voru íbúar um áramótin 238 en voru 258 árið áður og fækkaði því um 7,75%. Á Bifröst fækkaði íbúum úr 275 í 259 eða um 5,82%, í Ólafsvík fækkaði úr 1.016 í 985 eða um 3,05%, í Stykkishólmi fækkaði úr 1.166 í 1.142 eða um 2,06% og í Grundarfirði fækkaði íbúum úr 1.166 í 1.142 eða um 1,86%.
Þá fækkaði íbúum í strjálbýli á Vesturlandi á síðasta ári úr 2.790 manns í 2.735 eða um 1,97%. Í heildina fjölgaði íbúum á Vesturlandi á síðasta ári úr 14.877 í 15.029 eða um 1,02%.
|