Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 02:39 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Laugardalshöllin var upplýst af símum

6. mars 2007

Síðastliðinn laugardag var Samfés keppnin haldin í Laugardalshöll, en það er söngvakeppni félagsmiðstöðva út um allt land sem heldur keppnina. Fulltrúi Vesturlands í keppninni, Eva Margrét Eiríksdóttir, fulltrúi félagsmiðstöðvarinnar Óðals og nemandi í Kleppjárnsreykjaskóla gerði góða hluti í keppninni og varð í öðru sæti með lagið sitt Engill. Eva Margrét segir upplifunina frábæra frá keppninni og sérstaklega hafi verið gaman að syngja í höllinni, þar sem hljómburðurinn er jafn góður og raun ber vitni. Vinkonur hennar þær Kristrún Sveinbjörnsdóttir og Katrín Sigurðardóttir dönsuðu undir söng Evu Margrétar og skiluðu þær sínu hlutverki með sóma.

 

„Áður en ég steig á svið, spurði þulurinn mig hvort ég myndi flytja rólegt lag eður ei og þar sem ég jánkaði því bað hann alla í salnum að kveikja á símunum sínum og halda á lofti. Laugardalshöllin var því upplýst af símum meðan ég flutti lagið og stemningin alveg mögnuð,“ segir Eva Margrét, að vonum kát með árangurinn. Í fyrsta sæti í keppninni varð Herdís Rútsdóttir með lagið Heyr mína bæn, en Herdís kemur frá Hvolsvelli og keppti fyrir félagsmiðstöðina Tvistinn. Í þriðja sæti í keppninni voru fulltrúar Þebu í Kópavogi. Dómarar í keppninni voru Friðrik Ómar söngvari, Lára Rúnarsdóttir tónlistarmaður, Óli Palli á Rás2, Biggi söngvari Ampop og Regína Ósk söngkona.

 

Á myndinni er Eva Margrét með dansarana Kristrúnu og Katrínu til sitthvorrar handar.

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 02:30  A 4  2°C
Akrafjall 02:20  ANA 3  3°C
Hafnarfjall 02:20  V 2  3°C
Vatnaleið 02:30  A 3  -1°C
Hraunsmúli 02:20  A 5  2°C
Fróðárheiði 02:20  ASA 4  -0°C
Brattabr. 02:20  SSV 1  -2°C
Holtav.h. 02:20  S 2  -2°C
Laxárdalsh. 02:20  ASA 2  -1°C
Svínad. 02:20  A 3  -0°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
Snæfellsbær: Allir á sjó
Grundarfjarðarbær: Köttur í óskilum
Stykkishólmsbær: Tilkynning - Athugið
Stykkishólmsbær: 296. fundur bæjarstjórnar
Borgarbyggð: Ljóð unga fólksins
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent