Prentað laugardaginn 25. maí kl. 21:12 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Hvernig líst þér á nýju ríkisstjórnina?

Mjög illa

Frekar illa

Hlutlaus

Frekar vel

Mjög vel

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Formaður bæjarráðs úr Frjálslynda flokknum

6. mars 2007

Karen Jónsdóttir bæjarfulltrúi Frjálslyndra og óháðra í bæjarstjórn Akraness og formaður bæjarráðs Akraness hefur sagt sig úr Frjálslynda flokknum eftir skamma viðveru í flokknum. Í samtali við Skessuhorn staðfesti Karen úrsögn sína en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Karen var í efsta sæti framboðslistans við síðustu bæjarstjórnarkosningar en gerðist ekki flokksbundin fyrr en skömmu fyrir landsþing flokksins í janúar.  Karen segir úrsögn sína ekki hafa nein áhrif á samstarf innan lista Frjálslyndra og óháðra og ekki verði nein breyting á meirihlutasamstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn í bæjarstjórn Akraness.

 

Magnús Þór Hafsteinsson alþingismaður, varaformaður Frjálslynda flokksins og varamaður Karenar í bæjarstjórn segir í samtali við Skessuhorn að úrsögn Karenar megi rekja til óánægju hennar með skipan Kristins H. Gunnarssonar í annað sæti á lista Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi. Magnús segir Karen hafa gengið í Frjálslynda flokkinn skömmu fyrir landsþing flokksins og hún hafi stutt framboð sitt til varaformanns flokksins. Við uppstillingu framboðslista flokksins í Norðvesturkjördæmi hafi Karen óskað eftir því að kona frá Akranesi tæki annað sætið og segist Magnús hafa stutt þá tillögu. Pólitískt landslag hafi hins vegar breyst með komu Kristins H. Gunnarssonar í flokkinn og hann hafi fengið yfirgnæfandi stuðning innan flokksins til setu í öðru sætinu. Við þá niðurstöðu hafi Karen ekki sætt sig við og að endingu sagt sig úr flokknum eftir stutta veru þar.

Magnús segir alltaf erfitt að sjá á bak fólki úr flokknum. Engan skugga hafi borið á samstarf hans og Karenar og það verði óbreytt áfram innan bæjarstjórnarflokks Frjálslyndra og óháðra á Akranesi.

Fyrir skömmu sagði Karen sig úr tveimur nefndum á vegum Akraneskaupstaðar en segir þá úrsögn ekki tengjast þessu máli. Hún hafi verið að taka við nýju krefjandi starfi og því hafi hún þurft að minnka við sig í nefndarstörfum.  

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 21:00  SV 3  5°C
Akrafjall 21:00  SV 3  5°C
Hafnarfjall 21:00  SSV 6  4°C
Vatnaleið 21:00  SA 8  3°C
Hraunsmúli 21:00  ANA 5  6°C
Fróðárheiði 21:00  ASA 3  4°C
Brattabr. 21:00  SSV 7  1°C
Holtav.h. 21:00  SSV 9  1°C
Laxárdalsh. 21:00  ANA 3  1°C
Svínad. 21:00  ANA 4  2°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent