Til þess að fylgja eftir þessum háleitu markmiðum kemur fram í skýrslunni að hópurinn leggur til að núverandi húsnæði SB verði selt, að fjárfest verði í nýju húsnæði undir núverandi starfsemi bóka- lista- og skjalasafns og starfsemin aukin. Það húsnæði verði staðsett miðsvæðis í Borgarnesi. Aðspurð hvort væri verið að hugsa um hús að Borgarbraut 55-57 sagði Sigríður Björk að ekki væri hægt að neita því að sú staðsetning þætti spennandi, ef byggt yrði þar. Eins hefði verið rætt um Digranesgötu, en það væri síðri kostur þar sem sá staður væri ekki alveg eins miðsvæðis. En ekkert hefði verið ákveðið í þessum efnum, þetta væru aðeins tillögur.
Lagt er til að heiti Safnahúss Borgarfjarðar verði breytt í Safnamiðstöð Borgarfjarðar sem sinni einnig þjónustu og ráðgjöf til annarra safna og sýninga í héraðinu. Jafnframt eru tillögur um að rekstri Safnamiðstöðvar Borgarfjarðar verði skipt upp í þrjár aðskildar en þó tengdar einingar: Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar, Héraðsbókasafn Borgarfjarðar og Munasafn Borgarfjarðar. Skiptingin verði gerð á grundvelli þess að um mismunandi starfsemi og áherslur er að ræða. Markmiðið er tvíþætt: Að bjóða upp á fyrirmyndarastöðu hvað varðar varðveisluþáttinn og að gera bóka- og skjalasafn að lifandi upplýsinga- og þjónustumiðstöð fyrir íbúa. Sú miðstöð yrði einmitt staðsett miðsvæðis og myndi hýsa bóka- og skjala- og listasafn. Í því húsnæði yrði meiri áhersla lögð á afgreiðslu og allar þær hliðargreinar sem nú eru orðnar tengdar söfnum af þessum toga. Meðfram þessu yrði lögð áhersla á að byggja upp gott geymsluhúsnæði fyrir þá muni sem safnið á, jafnvel það stórt að leigja mætti út hluta þess til annarra safna. Þar væru munir geymdir við bestu fáanlegu aðstæður. Stefnt yrði að uppbygginu húsnæðis í Englendingavík og það nýtt sem framtíðarsýningarsvæði. Þar mætti gjarnan setja upp minni sýningar, tengdar ákveðnu efni og eins mætti lána hluti út um héraðið í tengslum við sýningar. En aðal málið væri að koma upp góðri geymslu.
Ennfremur leggur hópurinn til að menningarnefnd takið við hlutverki stjórnar safnahúss og að nýr forstöðumaður verði ekki ráðinn. Það starf verði lagt niður og menningarfulltrúi taki við hluta þeirra verkefna sem áður heyrðu undir forstöðumann. Að sögn Sigríðar Bjarkar gegnir menningarfulltrúi nú þegar hluta af því starfi sem samkvæmt skilgreiningu fellur undir forstöðumann. „En með þessari breytingu væri verið að leggja áherslu á deildarstjóra hvers sviðs og auka ábyrgð þeirra. Þeir myndu þá frekar geta sinn starfi innan síns sviðs og á sama tíma væri verið að auka vægi safnanna,“ sagði Sigríður Björk Jónsdóttir að lokum.
|