Forsvarsmenn fyrirtækisins Mjólku ehf. hafa sótt um lóð undir mjólkursamlag í Borgarnesi. Eins og Skessuhorn greindi frá um miðjan febrúar var það í skoðun hjá fyrirtækinu að taka á leigu fyrrum iðnaðarhúsnæði í Borgarnesi undir framleiðsluna en nú er stefnan sett á nýbyggingu enda telja forsvarsmenn Mjólku Borgarnes bestu staðsetningu fyrir mjólkuriðnað í landinu. Að sögn Páls S. Brynjarssonar, sveitarstjóra Borgarbyggðar hefur sveitarfélagið boðið Mjólku tvær lóðir til skoðunar, báðar við Vallarás í Borgarnesi, sem báðar liggja stutt frá þjóðveginum. Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um það af hálfu fyrirtækisins hvor lóðin verður fyrir valinu en báðar eru þær um 7.500 fermetra.
|
Sigurður Óli Ólason, stjórnarformaður Mjólku segir í samtali við Skessuhorn að fyrirtækið þurfi að fara af stað með lágmark 2000 fermetra byggingu sem byggð verður í Borgarnesi. „Við erum að sprengja allt utan af okkur í Reykjavík og þurfum stærra hús fyrir framleiðsluna. Ein besta staðsetning fyrir mjólkuriðnað er í Borgarnesi og því stefnum við þangað. Það á bara eftir að ákveða hvora lóðina við tökum. Þess má einnig geta að mjólkurbíll fyrirtækisins er orðinn staðsettur í Borgarnesi og fest hafa verið kaup á nýjum, stærri bíl sem þurfti til að anna ört vaxandi hópi innleggjenda,” segir Sigurður Óli.
|