Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 15:44 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

BNT kaupir lóðir, hús og fyrirtæki á Akranesi

28. mars 2007

Nýlega festi eignarhaldsfélagið BNT kaup á húsi Akranessdeildar Rauðakross Íslands við Þjóðbraut 11 en fyrir átti félagið Essóstöðina Skútuna við Þjóðbraut 9 og Hjólbarðaviðgerðina sf við Dalbraut 14, sem er á samliggjandi lóð við hinar tvær. Þessar þrjár samliggjandi athafnalóðir mynda stórt svæði með góðri staðsetningu sem býður upp á ýmsa möguleika.  Samkvæmt heimildum Skessuhorns eru uppi hugmyndir um byggingu fjölþjónustufyrirtækis fyrir bíleigendur. Bílanaust hefur á undanfarandi misserum markvisst verið að kaupa rekstur hjóbarðafyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu, samanber kaup á Bæjardekki, Dekki.is og Hjólbarðaverkstæðinu Dekkinu og virðist sem félagið stefni að aukinni starfsemi á landsbyggðinni.

 

“Enn sem komið er liggja ekki fyrir neinar áætlanir um breytta nýtingu á svæðinu á Akranesi milli Dalbrautar og Þjóðbrautar og óvíst hvenær það verður endurskipulagt fyrir breyttan rekstur,” segir Heimir Sigurðsson framkvæmdastjóri fasteignafélags BNT í samtali við Skessuhorn. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um framtíðaráform fyrirtækisins.

 

Eignarhaldsfélagið BNT var stofnað árið 2006 þegar hluthafar og stjórnendur Bílanaustar hf ásamt nokkrum fjárfestum keyptu allt hlutafé í Olíufélaginu ehf. og sameinuðu rekstur félaganna undir BNT hf. sem á allt hlutafé í báðum félögunum. Eftir samrunann störfuðu um 700 manns hjá þessum fyrirtækjum og var samanlögð áætluð velta yfir 30 milljarða króna árið 2006.

 

 
 
Senda á Facebook


SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:



Hvað er þrír plús fjórir?

  

Skilaboð

Nafn sendanda:



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Undirskrift 

 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 15:40  VSV 3  12°C
Akrafjall 15:30  VNV 4  14°C
Hafnarfjall 15:30  NNV 4  15°C
Vatnaleið 15:30  NV 6  12°C
Hraunsmúli 15:30  N 10  14°C
Fróðárheiði 15:30  NV 8  10°C
Brattabr. 15:30  NA 7  13°C
Holtav.h. 15:40  N 11  10°C
Laxárdalsh. 15:30  NNA 13  10°C
Svínad. 15:40  NNA 10  11°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent