Fyrsta kosningamiðstöð Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi verður opnuð í Borgarnesi í kvöld, föstudaginn 30. mars. Kosningamiðstöðin verður staðsett í Englendingavík og hefst opnunarhátíðin klukkan 20:00. Þingmenn og frambjóðendur ræða við gesti, boðið verður upp á léttar veitingar, söngatriði o.fl. Hvetjum sem flesta til að láta sjá sig í kvöld. Opnunartími kosningarskrifstofunnar verður sem hér segir: mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá 17:00 til 20:00 og um helgar frá 14:00 til 17:00.
(fréttatilkynning)
|