Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 00:47 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Greiðslur til dagforeldra fyrir ónýtt rými

20. apríl 2007

Grundarfjarðarbær hefur samþykkt reglur um greiðslur til dagforeldra vegna dagvistunarrýma sem ekki hefur tekist að fylla í. Greitt verður frá og með dagsetningu umsóknar, eða þegar rými hefur verið ónotað í að minnsta kosti tvær vikur. Greiðslurnar geta að hámarki numið tvöfaldri upphæð niðurgreiðslu Grundarfjarðarbæjar með átta klukkustunda vistuna barna hjóna eða sambúðarfólks fyrir hvert dagvistunarrými, eða hlutfall af því í samræmi við framboðinn vistunartíma. Þær greiðslur nema í dag 21.600 kr. á mánuði þannig að hámarksgreiðslur til dagforeldra geta því numið 43.200 krónum. Að hámarki er greitt til hvers daforeldris fyrir tvö vistunarrými í senn, eða hlutfall af þeim í samræmi við eftirspurn og framboðinn vistunartíma.

 

Greiðslurnar standa að hámarki yfir í sex mánuði samfleytt, en þó er ekki greitt fyrir tímabilið 1. júlí til 15 ágúst ár hvert. Óski dagforeldrar eftir framlengingu á greiðslum þarf að sækja sérstaklega um það og metur bæjarstjórn hvert tilfelli fyrir sig. Greiðslurnar geta runnið til tveggja dagforeldra samtímis og gildir tímasetning umsókna.  Séu umsóknir tímasettar jafnt, gildir starfsaldur umsækjenda. Við sérstakar aðstæður getur bæjarstjórn ákveðið að greiðslur nái tímabundið til þriggja dagforeldra samtímis.

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 00:30  ASA 4  1°C
Akrafjall 00:30  A 2  2°C
Hafnarfjall 00:30  ASA 2  2°C
Vatnaleið 00:30  NV 0  -0°C
Hraunsmúli 00:30  A 1  2°C
Fróðárheiði 00:30  ASA 2  -0°C
Brattabr. 00:30  S 0  -1°C
Holtav.h. 00:30  VSV 1  -0°C
Laxárdalsh. 00:30  A 3  -0°C
Svínad. 00:40  V 1  -0°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
Snæfellsbær: Allir á sjó
Grundarfjarðarbær: Köttur í óskilum
Stykkishólmsbær: Tilkynning - Athugið
Stykkishólmsbær: 296. fundur bæjarstjórnar
Borgarbyggð: Ljóð unga fólksins
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent