„Íbúar með lögheimili í Borgarbyggð, sem leggja stund á sérhæft tónlistarnám utan sveitarfélagsins, geta sótt um niðurgreiðslu námskostnaðar. Skilyrði er að viðkomandi sé í fullu tónlistarnámi. Heimilt er að niðurgreiða tónlistarnám fyrir nemendur á aldrinum 4 til 25 ára. Heimilt er að niðurgreiða framhaldsnám í almennum tónlistarskólum í allt að sex annir. Borgarbyggð niðurgreiðir ekki tónlistarnám á háskólastigi.“ Einnig kemur fram að styrkir eru misháir eftir því hvar viðkomandi nemandi er staddur í náminu. Lægstu styrkir eru veittir til fornáms en þeir hæstu til framhaldsstigs eða 240 þúsund á vetri.
|