Þar sem nú líður að kosningum til Alþingis þótti Skessuhorni rétt að rifja upp nokkur atvik úr heimi stjórnmálamanna. Mörgum hefur fundist kosningabaráttan að þessu sinni fremur litlaus en víst er að svo hefur ekki alltaf verið. Hér er eitt dæmi:
Ágætur framsóknarmaður í bæjarstjórn nokkurri átti í harðri orðasennu við alþýðuflokksmann um eitthvert gagnmerkt málefni og sagði þá meðal annars að alþýðuflokksmaðurinn hefði "tekið of langt upp í sig" í málinu og að hann myndi örugglega þurfa að "klofgleypa það sem hann hefði sagt." Annar framsóknarmaður svaraði sposkur á svip: "Ég hef nú tvær skoðanir á þessu máli... "
Sjáið kómik úr kosningabaráttunni í Skessuhorni sem kemur út í dag.
|