Rætt við Þorgeir Jósefsson, gamlan jaxl úr pólitíkinni
Kosningar eru ekki daglegt brauð en á þeim tíma sem liðinn er síðan farið var fyrst að kjósa á Íslandi hefur margt breyst. Í eina tíð voru hér á landi einmenningskjördæmi, síðar fjölmenningskjördæmi og einnig hafa kjördæmin stækkað. Að nýlega afstöðnum kosningum er gaman að rifja upp hvernig þessi mál gengu fyrir sig forðum tíð. Blaðamaður Skessuhorns leit inn í betri stofuna hjá Jósef Þorgeirssyni á Akranesi sem alltaf segist hafa verið pólitískur. Hann sat sjálfur á þingi árin 1978 til 1983 og segir að þá hafi um margt verið óvenjulegt landslag í pólitíkinni. Þrjár ríkisstjórnir voru við völd á þessum tíma og sú síðasta undir forystu Gunnars Thoroddsen.
Jósef er hafsjór af sögum úr liðinni baráttu og gefur lesendum Skessuhorns sem kemur út í dag, nokkur sýnishorn.
|