Hópur frá Sundfélagi Akraness kom heim á sunnudag eftir að hafa tekið þátt í sundmóti í Esbjerg í Danmörku um helgina. Mótið nefnist Danish International Swim Cup og er eitt stærsta sundmót í heiminum, en SA fer reglulega með hóp á mótið. Að þessu sinni fór afrekshópur félagsins út, sjö krakkar ásamt þjálfara og fararstjóra. Skagakrökkunum hefur gekk vel á mótinu. Hrafn Traustason átti fjögur af tíu bestu afrekum í sínum aldursflokki á mótinu. Vann hann sigur í 25, 50 og 100 metra bringusundi og 100 metra fjórsundi. Hann setti nýtt Akranesmet í 50 metra bringusundi og sló gamalt met frá 1990. Ágúst Júlíusson náði öðru sæti í 100 metra flugsundi á frábærum tíma og bætti tíma sinn í 100 fjórsundi mikið. Jón Þór Hallgrímsson gerði sér lítið fyrir og náði öðru sæti í 50 metra baksundi og bætti tíma sinn í 200 m skriðsundi.
|
Lea Hrund Gujónsdóttir, Leifur Guðni Grétarsson, Rúnar Freyr Ágústsson og Örn Viljar Kjartansson hafa einnig öll synt vel, en Örn keppti ekki á sunnudaginn vegna veikinda. Leifur Guðni og Lea Hrund keppti bæði í flokkum með tveimur árgöngum og eru á yngra árinu þar. Krakkarnir hafa látið vel af för sinni, aðbúnaður var til fyrirmyndar og allir skemmtu sér vel, en sýndu fagmennsku og keppnisskap þegar kom að sundinu.
|