Áhrif norsku sveitaseturshúsanna urðu mikil á Íslandi, bæði vegna innflutnings verksmiðjuframleiddra húsa og ekki síst vetgna katalóga sem sýndu hús, byggingarhluta og skraut og notaðir voru sem fyrirmyndir hjá íslenskum forsmiðum.
Norska sýningin “Complet færdige Huse” um verksmiðjuframleiðslu á húsum og byggingarhlutum hjá Strømmen Trævarefabrik í Strømmen nálægt Lillestrømm, var sett upp af Akershus Fylksmuseum, Oslo Bymuseum og Fortidsminneforeningen í Oslo og Akershus árið 2003.
Vegna þeirra áhrifa sem Norsku sveitaseturshúsin höfðu á Íslandi þótti tilvalið að setja þessa sýningu upp hérlendis með viðbót um katalógshús og sveitaseturshús á Íslandi.
Íslenski hluti sýningarinnar er unnin á vegum Húsafriðunarnefndar ríkisins, Minjasafns Reykjavíkur og Norska sendiráðsins. Efnið er að mestu leiti tekið úr bókinni “Af norskum rótum – Gömul timburhús á Íslandi” sem gefin var út af Máli og Menningu árið 2003.
Norska húsið er sjálft, eins og nafnið gefur til kynna, forsmíðað norskt hús, reist árið 1832 af Árna Thorlacius kaupmanni og útgerðarmanni í Stykkishólmi. Það er nú í eigu Byggðasafns Snæfellinga og Hnappdæla og á miðhæðinni hefur verið sett upp heimili Árna og Önnu Thorlacius “Heldra heimili í Stykkishólmi á 19. öld”. Á jarðhæð eru sýningarsalir og Krambúð þar sem hægt er að fá vandað handverk, listmuni, minjagripi, póstkort, bækur og gamaldags nammi, gamalt leirtau og fleiri forvitnilegar vörur. Og í risinu er opin safngeymsla þar sem safngestir geta glöggvað sig á hinum miklu viðum sem húsið er byggt úr og upplifað stemmingu liðins tíma á annan hátt en á neðri hæðunum.
|