Er ferðamenn komu á svæðið við bæinn Öxl, þar sem Björn mun hafa átt heimili sitt, hafði Gústaf stillt sér upp og var ekki til setunnar boðið að hrekkja gesti og gerði hann það ótæpilega eins og Sæmundur hafði beðið hann um. Grjóti var kastað fyrir fætur styttunar. Einn gestanna hafði komið heldur nálægt styttunni og hvæsti þá Axlar Björn dimmum ógnandi rómi: “Farðu, farðu!” Átti þessi kona fótum fjör að launa og mátti heyra hræðsluhróp hennar umhverfis allan Snæfellsjökul og langt út á Breiðafjörð. Stökk Axlar Björn þá af stalli sínum og hélt áfram að hrella gesti sem sáu þó fljótlega að grín væri í gangi og tóku því vel enda var þeim fljótlega boðið upp á blóðheitan drykk til að hressa við sálina.
Haldið var áfram för um Snæfellsjökul og komið m.a. við á Djúpalónssandi þar sem tekið var á móti gestum með grillveislu sem búið var að koma fyrir á svæðinu.
Sjá fleiri myndir af axarsköftum Axlar Bjarnar í Skessuhorni sem kemur út í dag.
|