Lokahelgi skammtímavistunar fyrir börn með sérþarfir var um síðustu helgi á Gufuskálum á Snæfellsnesi. Þar hefur Þroskahjálp haft húsnæði til afnota og hefur í vetur verið margþætt og fjölbreytt starfsemi í gangi fyrir börn sem nýtt hafa þessa vistun. Margt var þar bæði til skemmtunar og fróðleiks gert, að sögn Brynju Úlfarsdóttur deildarstjóra. Var t.d. farið í heimsókn í félagsmiðstöðina Afdrep, farið í sleðaferð og sjoppuferð og að ógleymdu því þegar Lionsmenn komu á björgunarsveitarbíl og óku hópnum fyrst í íþróttahúsið og síðan að Gilinu þar sem þeir gæddu sér á veitingum. Börnin sem nýta sér helgardvölina á Gufuskálum eru átta talsins og starfsmenn eru sex. Þroskahjálp sér um rekstur hússins en ríkið um laun starfsfólks. Sagði Brynja í samtali við Skessuhorn að keypt hafi verið ný tölva og nýtt sófasett í húsnæðið og aðbúnaður hafi því á margan hátt batnað.
|