Í gær voru útskrifaðar á Akranesi sjö konur af Brautargengisnámskeiði sem Impra nýsköpunarmiðstöð hefur haldið undanfarin ár við vaxandi vinsældir. Auk Impru stóðu að námskeiðinu á Akranesi, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, SSV, og Akraneskaupstaður. Kristín Björg Árnadóttir starfsmaður SSV var umsjónarmaður verkefnsins sem staðið hefur síðastliðnar 15 vikur og lauk með útskrift, eins og áður segir. Markmið námskeiðsins er að kenna þátttakendum að vinna og þróa hugmynd sem getur orðið að nothæfri viðskiptahugmynd eða til að komast að því að einhver hugmynd er alls ekki framkvæmanleg.
|