Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 17:36 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Reiðhjóladagur á Akranesi

30. maí 2007

Fimmtudaginn 17. maí sl. var hinn árlegi hjóladagur á Akranesi haldinn á lóð Grundaskóla.  Að deginum stóðu Slysavarnadeild kvenna á Akranesi, Grundaskóli, Brekkubæjarskóli, Rauði krossinn og lögreglan.  Settar voru upp fjölbreyttar hjólaþrautir sem börn á öllum aldri spreyttu sig á. Félagar í Rauða krossinum sáu um að stilla hjólahjálma og lögreglan skoðaði hjólin en mikilvægt er að hvort tveggja sé í lagi til að auka öryggi barna í umferðinni. Í lok dagskrá söfnuðust allir saman í félagsaðstöðu skólans þar sem Valgerður Helgadóttir, nemandi í Brekkubæjarskóla sagði frá reynslu sinni af reiðhjólaslysi sem hún lenti í í vetur og hvernig reiðhjólahjálmur bjargaði lífi hennar. 

 

Í lokin var dregið í happdrætti og allir fengu svaladrykk í boði Einars í  Einarsbúð. Þess skal getið að hluta af hjólaþrautunum höfðu nemendur í Grundaskóla útbúið í smíði hjá þeim Margréti Þorvaldsdóttur og Ruth Jörgendóttur, þar á meðal voru rampar, torfæra, vegasalt og vegleg umferðarmerki. Eru þeim færðar bestu þakkir fyrir þeirra framlag til hjóladagsins.

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 17:30  A 7  10°C
Akrafjall 17:30  S 3  8°C
Hafnarfjall 17:30  SSV 8  9°C
Vatnaleið 17:30  SA 7  7°C
Hraunsmúli 17:30  S 3  8°C
Fróðárheiði 17:30  SSV 1  6°C
Brattabr. 17:30  S 9  5°C
Holtav.h. 17:30  SSV 10  5°C
Laxárdalsh. 17:30  SSA 1  6°C
Svínad. 17:30  S 6  5°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent