Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 19:56 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Hugmyndafræði All Senses hlýtur Frumkvöðlaverðlaun Vesturlands

31. maí 2007

Frumkvöðlaverðlaun Vesturlands voru afhent í dag í annað sinn. Í ár var það hugmyndafræði All Senses hópsins á Vesturlandi sem hlaut þau. Það eru Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi sem veita verðlaunin. All Senses er svokallaður klasahópur ferðaþjónustuaðila sem byggir á þeirri hugmyndifræði að samvinna sé vel framkvæmanleg í samkeppni. Það var Sigríður Finsen, stjórnarformaður Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem tilkynnti um úrslitin. Hún sagði í ræðu sinni að hugmyndafræði All Senses Group væri merki um samvinnu grasrótarinnar sem með góðu skipulagi og stýringu virkaði vel.

 

Sérstök dómnefnd fór yfir þær tilnefningar sem bárust, en að þessu sinni voru þær 20 eða helmingi fleiri en á síðasta ári. Það sem einkum er horft til þegar valið fer fram er nýnæmi í framkvæmdum, atvinnulífi eða félagslífi. Hversu mikið framfaraskref verkefnið er fyrir landshlutann og hversu mikið áræði og fyrirhyggju þurfi til að hrinda hugmyndinni í framkvæmd.

 

Aðrir sem hlutu tilnefningar voru:

Múlavirkjun ehf, Andrés Konráðsson, Eyrbyggja, Gísli Einarsson, Arnheiður Hjörleifsdóttir, María Guðrún Nolan, Víngerðin í Borgarnesi, Smellinn ehf, Ísagn ehf, Guðrún Bergmann, Runólfur Guðmundsson, Skipavík, Ásgeir Valdimarsson, Reykofninn Grundarfirði, Haukur Þórðarson, Hótel Glymur, Ásmundur E. Daðason, Landnámssetrið og Tölvuþjónustan SecureStore.

 

Verðlaunagripurinn var gerður af Oddnýju Þ. Bragadóttur í Kristý í Borgarnesi. 

 

Á myndinni eru þeir sem voru tilnefndir til verðlauna ásamt Þórdísi Arthúrsdóttur sem heldur á verðlaunagripnum góða fyrir hönd All Senses Group.

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 19:50  VSV 1  12°C
Akrafjall 19:40  ASA 1  11°C
Hafnarfjall 19:50  NNA 5  14°C
Vatnaleið 19:50  NV 7  11°C
Hraunsmúli 19:50  N 10  13°C
Fróðárheiði 19:40  NV 7  10°C
Brattabr. 19:40  NNV 7  9°C
Holtav.h. 19:50  NNV 8  5°C
Laxárdalsh. 19:40  NNA 11  7°C
Svínad. 19:50  N 7  9°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent