Prentað sunnudaginn 19. maí kl. 17:54 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Ásgarður á Hvanneyri breytir um hlutverk

7. júní 2007

Nú er verið að leggja lokahönd á stóran áfanga endurbættrar aðstöðu í Ásgarði, húsnæði Landbúnaðarháskóla Íslands, en þangað verða skrifstofur skólans fluttar í þessari viku. Neðri hæð gömlu heimavistarinnar hefur nú þegar verið breytt á nýstárlegan hátt en þar verður að finna rekstarskrifstofu skólans, skrifstofu rektors, fundarsal og sameiginlegt vinnu– og hvíldarrými starfsfólks. Þá er undirbúningur að framkvæmdum á efri hæð gömlu heimavistarinnar hafinn en henni verður breytt á sambærilegn hátt og mun einnig rýma skrifstofur skólans. Ágúst Sigurðsson, rektor, segir þetta algjöra byltingu fyrir starfsfólk skólans og löngu tímabært að geta loksins komið allri starfseminni undir sama þakið.

 

Hingað til hefur starfsemin verið dreifð um Hvanneyri. Þá fær hið margfræga græna teppi á holi skólans að fjúka, en það hefur þjónað hefur sínu hlutverki í langan tíma. Holið verður flísalagt og stigagangur dúkalagður. Á næsta ári verður hafist handa við að klæða Ásgarð og endurnýja glugga ásamt því að byrjað verður á C gangi heimavistarinnar en þar á að útbúa kennslu- og vinnuaðstöðu nemenda.

 

Innan tveggja ára er reiknað með að viðbygging rísi við anddyri skólans sem hýsa mun fjölnota kennslusali og bókasafn, en þau Þórunn Sigþórsdóttir og Ríkarður Briem frá VA arkitektum vinna nú að tillögum að þeirri byggingu. Þá sagði Ágúst að upp væru komnar hugmyndir um að breyta gamla skólanum í hótel sem væri hið mesta þarfaþing miðað við aukinn ferðamannastraum um Hvanneyri.

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 17:40  ASA 10  7°C
Akrafjall 17:40  ASA 8  8°C
Hafnarfjall 17:40  ASA 14  7°C
Vatnaleið 17:40  SA 10  5°C
Hraunsmúli 17:40  SA 8  6°C
Fróðárheiði 17:40  ASA 0  4°C
Brattabr. 17:40  S 12  4°C
Holtav.h. 17:50  SSV 9  5°C
Laxárdalsh. 17:40  SA 7  6°C
Svínad. 17:50  S 6  6°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
Grundarfjarðarbær: Vinnuskóli sumarið 2013
Grundarfjarðarbær: Vorskóli
Stykkishólmsbær: Heilsuvika 2013
Hvalfjarðarsveit: Sundleikfimi
Stykkishólmsbær: Vorskólinn 2013
Stykkishólmsbær: Sýningin í Norska húsinu
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent