Stjórn Dvalarheimilisins Höfða hefur samþykkt að fara þess á leit við eigendur Höfða, þ.e. Akraneskaupstað og Hvalfjarðarsveit, að þeir komi að fjármögnun fyrirhugaðrar stækkunar á þjónusturými og matsölum. Yrði það með sama hætti og hafður var á við fyrsta og annan áfanga Höfða. Í greinargerð með samþykktinni kemur fram að stjórnin telji aðkallandi að stækka þjónusturýmið, þ.e. matsal, samkomusal og matsal hjúkrunardeildar. Mikil þrengsli stafi af því að æ fleiri íbúar heimilisins þurfi að nota hjólastól eða göngugrind. Bygging Höfða og stækkun var á sínum tíma fjármögnuð með langtímalánum sem eigendur heimilisins greiddu. Stjórnin vill hafa sama háttinn á þeim framkvæmdum sem hún telur nauðsynlegar nú.
|