Víkingur Ólafsvík laut í gras á heimavelli í gærkvöldi fyrir Þrótti Reykjavík, en leikurinn fór 0-2. Gestirnir mættu ákveðnir til leiks í Ólafsvík í gær og gerðu út um leikinn á tveggja mínútna kafla. Skagamaðurinn og fyrrverandi leilkmaður ÍA og Skallagríms Hjörtur Hjartarson skoraði eftir 14 mínútna leik og Þróttur bætti öðru marki við tveimur mínútum síðar. Eftir það var ljóst hvernig leikurinn mundi fara. Þetta er fjórði tapleikur Víkings á tímabilinu, en liðinu hefur ekki enn tekist að vinna leik. Víkingur er nú á botni deildarinnar en eina stig liðsins kom í 0-0 jafntefli við Njarðvík í fyrsta heimaleiknum. Liðinu hefur gengið afleitlega að skora og aðeins komið boltanum einu sinni í markið í fimm leikjum en fengið á sig átta mörk. Ljóst er að Víkingur þarf að fara í naflaskoðun og efla baráttuandann ætli þeir sér að halda sér uppi í deildinni.
|