Eins og fram hefur komið í fréttum standa Búnaðarsamtök Vesturlands fyrir verkefni sem nefnist Brunavarnir í sveitum. Guðmundur Hallgrímsson, fyrrum bústjóri á Hvanneyri er starfsmaður verkefnisins. Af því er nú það að frétta að lokið er yfirferð um sveitabæi í Grundarfirði þar sem brunavarnir hafa verið teknar út. Næst verða teknar fyrir brunavarnir í Borgarbyggð en sveitarfélagið mun þar vinna með Búnaðarsamtökunum að verkefninu. Þá hafa tryggingafélög sýnt verkefninu áhuga og boðið bæði samstarf og kostnaðarþátttöku. “Þegar er búið að selja nokkur sérhæfð brunavarnarkerfi fyrir búfjárhús en eitt slíkt kerfi er til sölu hjá Búnaðarsamtökum Vesturlands,” segir m.a. í nýju fréttabréfi Búnaðarsamtaka Vesturlands.
|