Vegna fjölda áskorana hefur verið efnt til aukasýningar á sýningu þeirra KK og Einars Kárasonar Svona eru menn næstkomandi laugardag. Lokasýning var haldin 29. maí en vegna eftirspurnar hefur verið ákveðið að efna til einnar sýningar enn. Sýningin var frumsýnd um áramót og hefur hlotið fádæma góðar viðtökur. Segja má að með sýningunni sé komið til sögunnar alveg nýtt leikhús- og/eða sagnaform. Söguefnið KK er viðstaddur og hlustar af athygli á meðan saga hans er sögð - grípur einstaka sinnum inn í söguna og leikur síðan lög sem hann hefur samið innblásinn af lífsreynslu sinni. KK og Einar stjórna nú í kjölfar vinsælda sýningarinnar rabbþættinum Á vængjum yfir flóann á Rás eitt eftir fréttir á laugardagskvöldum. En eru nokkur sæti laus á aukasýninguna á laugardaginn.
|