Um Jónsmessuna hefur á annan áratug verið haldin vegleg sumarhátíð í Hamarsbúð á Vatnsnesi. Að þessu sinni verður umrædd hátíð haldin á morgun, laugardaginn 23. júní og hefst kl. 19. Þetta er orðinn árviss atburður þar sem Húsfreyjurnar á Vatnsnesi framreiða margs konar sælkerarétti sem sumir hverjir eru afar fáséðir á borðum landsmanna. Mikið er lagt upp úr að matföngin á hlaðborðinu séu allt í senn; fjölbreytt, sérstök og í fyrsta gæðaflokki svo flestir geti fundið eitthvað við sitt hæfi í mat og drykk. Fjöruhlaðborðið er löngu landsþekkt og sækja gestir þangað um langan veg til að njóta þeirrar sérstöðu sem þarna er boðin. Áhugasömum skal bent á að matseðillinn er birtur á www. northwest.is
|