Prentað laugardaginn 25. maí kl. 20:44 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Hvernig líst þér á nýju ríkisstjórnina?

Mjög illa

Frekar illa

Hlutlaus

Frekar vel

Mjög vel

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Stór hundasýning í Víðidal um helgina

21. júní 2007

Árleg sumarsýning Hundaræktarfélags Íslands fer fram nú um helgina 23.- 24. júní, í reiðhöll Fáks í Víðidal og hefst klukkan kl. 9.00 laugardag og sunnudag. Sýningin er langstærsta sumarsýning sem haldin hefur verið á Íslandi þar sem um 640 hundar eru skráðir til leiks af 75 tegundum. Fjórir erlendir dómarar frá Svíþjóð, Portúgal, Rússlandi og Möltu koma til landsins til að dæma hundana. Þar að auki kemur frá dómari frá Danmörku sem mun dæma unga sýnendur. Öflugt barna- og unglingastarf er starfrækt innan félagsins og mikil gróska innan þess, að þessu sinni taka 39 ungir sýnendur þátt í keppni ungra sýnenda á aldrinum 10-17 ára.

 

Tilgangur hundasýninga er að dæma hundana út frá ræktunarmarkmiði hverrar tegundar. Í anddyri reiðhallarinnar verða glæsilegir kynningarbásar um ólíkar hundategundir. Þar gefst gestum og gangandi kostur á að kynnast hundunum og ræða við hundeigendur auk þess sem á staðnum verða fjöldinn allur af sölu- og kynningarbásum þar sem ýmis tilboð verða í gangi.

 

Nánari upplýsingar um dagskrá sýningarinnar er er að finna á vefsíðu Hundaræktarfélags Íslands, www.hrfi.is. Ef óskað er frekari upplýsinga má gjarnan hafa samband við undirritaða.

 

Meðfylgjandi er mynd af besta hundi marssýningar 2007, tíkin er af tegundinni Shetland sheepdog og heitir Aha Hot Fine Fairydream sýnandi er Þorbjörg Ásta Leifsdóttir, einn sigursælasti ungi sýnandinn hérlendis. Ásamt henni er dómarinn Johan Juslin frá Finnlandi og Jóna Th. Viðarsdóttir formaður Hundaræktarfélags Íslands. Eigandi tíkarinnar er Vignir Sigurðsson.

Ljósmyndari: Johan Frick-Meijer

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 20:30  VSV 3  5°C
Akrafjall 20:30  SV 4  5°C
Hafnarfjall 20:30  SSA 7  4°C
Vatnaleið 20:30  SA 8  3°C
Hraunsmúli 20:30  A 4  6°C
Fróðárheiði 20:30  SA 1  3°C
Brattabr. 20:30  SSV 7  1°C
Holtav.h. 20:30  SSV 10  2°C
Laxárdalsh. 20:30  ANA 3  2°C
Svínad. 20:30  S 3  3°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent