Á sunnudag er veiðidagur fjölskyldunnar og af því tilefni er frítt í veiði í fjölda vatna á Vestulandi. Frítt verður í Meðalfellsvatn, vötnin í Svíndal, Langavatn á Mýrum, Hítarvatn, Vatnasvæði Lýsu, Hraunsfjarðarvatn, Baulárvallarvatn og Haukadalsvatn. Það er því um að gera fyrir alla að skella sér í veiðina, það kostar ekki neitt og allir geta veitt. Grímsá opnar í dag og samkvæmt upplýsingum frá veiðimönnum hafa sést laxar í ánni og öll skilyrði eru ágæt. Jón Þ. Júlíusson var á bökkum Grímsár í gær og átti von á ágætis opnun.
|
|
Ekki hefur þó verið rífandi gangur í veiðinni, lítið hefur frést af veiði í Laxá í Leirársveit ennþá, Laxá í Kjós hefur gefið 10-12 laxa og Norðurá er komin með um 100. Ásmundur Helgason var staddur við Norðurá þegar Skessuhorn heyrði í honum og sagði að þar væri veiðin rétt að byrja. Þverá og Kjarrá hafa gefið um 40 fiska. |