Á morgun verður haldin minningarathöfn í tilefni af því að 60 ár eru liðin frá strandi breska togarans Dhoon við Látrabjarg. Þar var 12 manns af 16 manna áhöfn bjargað á frækilegan hátt og markar þessi atburður djúp spor í björgunarsögu landsins. Athöfnin hefst við minnisvarða við Geldingsskorardal á Látrbjargi og mun Sigurgeir Guðmundsson, formaður Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, halda ræðu. Þá mun Gísli Már Gíslaon stikla á stóru um björgunina áður en Alp Mehmet, sendiherra Breta á Íslandi, tekur til máls. Þá flytur Sr. Sveinn Valgarðsson blessunaroðr áður en gengið er að Setnagjá þar sem gott útsýni er yfir Flaugarnef.
|