“Nú er verið að setja upp bor á Lýsuhóli og er fyrirhugað að leita eftir heitu vatni á svæðinu,” segir Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ í samtali við Skessuhorn. Það er nýstofnað fyrirtæki, Orkuveita Staðarsveitar sem sér um borunina sem hefst í þessari viku. Eigendur að fyrirtækinu eru Snæfellsbær og íbúar Staðarsveitar. “Fyrir er nú þegar 50°C heitt vatn sem er notað í skólann og við vonumst til að finna heitara vatn á svæðinu. Ef það finnst í nýtanlegu magni er fyrirhugað að nýta það í sveitinna í kring. Þetta er dýrt verkefni og er alls óvíst hvort nýtanlegt vatn finnist þannig að þetta er 99% áhættuverkefni, svo það er engan veginn hægt að gera sér vonir fyrirfram,” segir Kristinn.
|