Ákveðið hefur verið að halda fund um húsnæðismál Varmalandsskóla í næstu viku. Á sama tíma verður rætt um framtíðarlausn fyrir leikskólann á staðnum. Í allnokkurn tíma hefur verið rætt um hvernig nýta skuli skólamannvirkin á Varmalandi. Skýrslur hafa verið unnar og úttekt gerð á mannvirkjum. Ekki hafa menn verið á eitt sáttir um hvort skuli byggja við og breyta elsta skólahúsinu. Eða þá að breyta því húsi sem í daglegu tali er kallað Húsó og er húsnæðið sem hýsti Húsmæðraskólann á Varmalandi á sinni tíð, þannig að það henti betur til kennslu. Mörgum hefur fundist að byggja skuli við gamla skólahúsnæðið og nýta Húsmæðraskólahúsið til annarra hluta, til þess að kennslan fari öll fram undir einu þaki, en aðrir eru þveröfugrar skoðunar. Eins og staðan er núna er kennt í báðum húsunum, gamla skólanum og Húsó og leikskólinn býr við þröngan kost í kjallara gamla skólahúsnæðisins.
|
Í samtali við Skessuhorn sagði Páll S. Brynjarsson sveitarstjóri að breytingar væru hafnar í Húsó sem miðuðu að því að þangað yrði hægt að flytja þrjá árganga næsta haust. „Við viljum gjarnan heyra í íbúunum, hver vilji þeirra er til þessara mála og því verðum við með fund í næstu viku þar sem hugmyndir og fyrirhugaðar framkvæmdir verða kynntar. Einnig liggur ljós fyrir að þegar framkvæmdir hafa verið kostnaðarmetnar sést hvað hægt er að fara í mikla vinnu. Einar Ingimundarson arkitekt hefur verið að teikna fyrir okkur hugmyndir að breytingum og þá vinnu leggjum við einnig fyrir íbúana á fundinum,“ sagði Páll.
|