Prentað sunnudaginn 26. maí kl. 01:39 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Hvernig líst þér á nýju ríkisstjórnina?

Mjög illa

Frekar illa

Hlutlaus

Frekar vel

Mjög vel

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Skorradalshreppur fær afhentan slökkvibíl

29. júní 2007

Skorradalshreppur hefur fest kaup á nýjum slökkviliðsbíl af Ford gerð sem afhentur var síðastliðinn föstudag. Það er Sigurjón Magnússon í Ólafsfirði sem smíðaði og afhenti bílinn Davíð Péturssyni oddvita og er verðið ríflega 16 milljónir króna. Eftir er að semja um það hvar bíllinn verður staðsettur. Bílinn sem um ræðir er vel útbúinn. Hann er með öflugu spili, GPS tæki, 2100 lítra vatnstanki auk 130 lítra froðutanks. Mest afköst dælu er 2200 lítrar á minútu og froðubúnaður á háþrýstingi 1-6%. Bíllinn kemur til viðbótar vatnsdælu í jeppakerru sem staðsett hefur verið í Skorradal síðustu árin.

 

Í Borgarfirði hafa verið tvö slökkvilið, annað í Borgarbyggð og hinsvegar Slökkvilið Borgarfjarðardala. Í því síðarnefnda hefur Pétur Jónsson verið slökkviliðsstjóri. Nú stendur til að sameina þessi slökkvilið í eitt þar sem þeir hreppar sem stóðu að slökkviliði Borgarfjarðardala hafa allir sameinast í Borgarbyggð utan Skorradalshrepps. Að sögn Davíðs Péturssonar oddvita á Grund stóð til að afhenda bílinn Slökkviliði Borgarfjarðardala til rekstrar en fljótlega verður það lagt niður svo ekkert hefur verið ákveðið enn. „Það er lítið gagn í bílnum hér heima á hlaði svo fljótlega kemur í ljós hver kemur til með að reka hann,“ sagði Davíð. Aðspurður hvar bíllinn yrði staðsettur svaraði hann því til að það hafi ekki verið ákveðið. „Við munum verða í samstarfi við Brunamálastofnun sem væntanlega mun segja til hvar best er að staðsetja bílinn. Sumarhúsaeigendur í Skorradal hafa sent áskorun til hreppsnefndar um að byggt verði yfir bílinn hér í hreppnum en ekkert hefur þó verið ákveðið í þeim efnum enn,“ sagði Davíð.

Pétur Jónsson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Borgarfjarðardala, sagði að bíllinn yrði staðsettur á Hvanneyri. „Hann þarf að vera hjá fólkinu,“ sagði Pétur og bætti við að Hvanneyri væri þéttbýlasti staðurinn á þessum slóðum og því væri eðlilegt að staðsetja slökkvibílinn þar.

 

 

Ljósm. Pétur Davíðsson.

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 01:30  A 4  3°C
Akrafjall 01:30  NA 2  4°C
Hafnarfjall 01:30  ASA 3  4°C
Vatnaleið 01:30  ASA 5  1°C
Hraunsmúli 01:30  SSA 6  3°C
Fróðárheiði 01:30  A 7  -0°C
Brattabr. 01:30  SSA 2  0°C
Holtav.h. 01:30  NNV 4  -1°C
Laxárdalsh. 01:30  NA 8  -0°C
Svínad. 01:20  NA 6  1°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent