Skólanefnd Akraness fjallaði um sumarlokun leikskóla Akraneskaupstaðar á fundi sínum 6. febrúar sl. Síðastliðið sumar var samræmd lokun leikskólanna tvær síðustu vikurnar fyrir verslunarmannahelgi. Skólanefnd samþykkti að sama fyrirkomulag verði viðhaft næsta sumar og telur að þannig náist nægileg reynsla til að meta hvort þessi tímasetning er heppileg. Skólanefnd samþykkti einnig að gerð verði könnun á viðhorfi foreldra til tímasetningar sumarlokunar og fleiri þátta á komandi vori. Allir leikskólarnir verða því lokaðir frá 21. júlí til og með 4. ágúst n.k.
|