Prentað föstudaginn 24. maí kl. 11:16 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Meðferðarheimilinu á Hvítárbakka lokað

19. febrúar 2008

Í gærmorgun óku Jónas Jónasson og Sigríður Margrét Hermannsdóttir forstöðumenn á meðferðarheimilinu Hvítárbakka í Borgarfirði í síðasta sinn burtu frá staðnum því ákveðið hefur verið að loka heimilinu. Skrifað var undir starfslokasamning í lok janúar en þau hjón tóku við heimilinu síðasta haust.

Í samtali við Skessuhorn segir Jónas að fyrst og fremst séu þau hjón undrandi því þau hafi búið sig undir að búa á Hvítárbakka næstu fimm árin.

 

 

Jónas segir að þarna sé ekki eingöngu verið að loka meðferðarheimili heldur sé starfsfólk að missa atvinnu sína. Fólk velti því líka fyrir sér af hverju var ekki gripið í taumana í haust, áður en samþykkt var að setja nýja húsbændur inn í starfið og taka allt í gegn. „Sterkasta tilfinningin er þó söknuður yfir því að fara. Við vorum búin að setja okkur vel inn í alla hluti og alla staðhætti og kynnast frábæru fólki. Við söknum þess alls,“ segir Jónas.

 

Hrefna Friðriksdóttir lögfræðingur sem er staðgengill forstjóra Barnaverndarstofu segir ástæðuna fyrir lokun eingöngu þá að ekki hafi verið nægileg aðsókn í dvöl á Hvítárbakka. Aðspurð segir hún að þó ákveðnar blikur hafi verið á lofti í haust um minni aðsókn að heimilinu þá hafi þeim ekki dottið í hug að hún yrði svona dræm. „Við hefðum aldrei endurnýjað samninginn ef það hefði verið fyrirliggjandi að aðsóknin myndi ekki aukast. Við urðum hins vegar núna að axla þá ábyrgð og grípa í taumana. Það var einfaldlega ekki hægt að láta á það reyna áfram að hafa enga eftirspurn eftir dvöl.“ Jafnframt bætti hún við að Barnaverndarstofa væri enn með húsið á leigu en engin ákvörðun hefði verið tekin um hvort eða hvaða starfsemi yrði á Hvítárbakka.

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 11:00  ANA 10  10°C
Akrafjall 11:00  ASA 4  10°C
Hafnarfjall 11:00  SA 12  10°C
Vatnaleið 11:00  SA 5  7°C
Hraunsmúli 11:00  A 5  9°C
Fróðárheiði 11:00  ASA 9  6°C
Brattabr. 11:00  S 2  7°C
Holtav.h. 11:00  N 3  4°C
Laxárdalsh. 11:00  ANA 6  5°C
Svínad. 11:10  ANA 5  8°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
Hvalfjarðarsveit: Lokað í dag í Heiðarborg
Stykkishólmsbær: Sumarlokun leikskólans 2013
Dalabyggð: Íbúakönnun 2013
Snæfellsbær: Vatnslaust
Grundarfjarðarbær: Blóðsöfnun
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
Hvalfjarðarsveit - skólar: Undirbúningur fyrir "Survivordaginn"
Hvalfjarðarsveit - skólar: Lokað í dag í Heiðarborg
Verkalýðsfélag Akraness: Sumarleiga orlofshúsa hefst í dag
Hvalfjarðarsveit - skólar: Gróðursetning og hjóladagur
 
mbl.is - innlent