Verkið samanstendur af tíu íslenskum þjóðlögum. Það verður síðan flutt í heimabæ allra tónlistarskólanna sem að Tónvest koma og verða tónleikarnir því sex talsins. Þeir fyrstu verða sunnudaginn 2. mars kl.14:00 í sal FSN, Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Þar mun einnig koma fram skólahljómsveit Tónlistarskóla Grundarfjarðar. Síðar sama dag verður verkið flutt á tónleikum í Ólafsvík . Helgina 8. til 9. mars eru svo skipulagðir tónleikar hljómsveitarinnar í Stykkishólmi, Búðardal, Borgarnesi og að endingu á Akranesi.
|